Prófíll

  • Nafn: Erla
  • Netfang: erlak@mr.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: Einar

Leit

Fréttir

-styttist í vorpróf
-miiikiđ ađ gera
-styttist í Halldísi, 19.júlí
-og Ítalíu 11.júní

Innskráningar kubbur

hópţrýstingur

13. janúar 2007 klukkan 02:22
Undanfarna daga hef ég verið beitt miklum hópþrýstingi um að blogga.  Þessi hópþrýstingur er einhliða og kemur reyndar bara úr einni átt (frá ofur-bloggaranum Berglindi).  Ég veit að þrýstingur frá einni stelpu getur varla talist hópþrýstingur en það gerir það nú samt í þessu tilviki.  Þeir sem þekkja hana mjöög vel kannast við þetta, þrýstingurinn er slíkur að manni finnst bara að maður geti hvergi skýlt sér og hárin rísa hvað eftir annað á höfði manns.  Ok kannski smááá ýkjur en samt ekki svo miklar.

Svo hér er ég.  Jól og áramót búin og voru hátíðirnar bara mjög rólegar að vanda.  Ég gerði ekki neitt hvað eftir annað og þess á milli sem ég gerði ekki neitt gerði ég ekki neitt..  Nema jú ég svaf, borðaði, hitti skemmtilegt fólk, spilaði spil, spilaði á píanó, söng og já svaf..  Svo fékk maður margar skemmtilegar gjafir um jól sem ég nenni nú varla að vera að segja frá hér.

Svo byrjaði skólinn bara aftur og allt frekar rólega af stað, gaman að hitta alla aftur og svona þegar ég kom aftur i bæinn. 

Stærðfræðipróf í fyrradag sem kom miklu miklu betur út en öll fyrri próf vetrarins í meðaleinkunn að minnsta kosti.  Ég fékk 9,4 í ólesnu og 9,5 í lesnu og er bara yfir mig hamingjusöm og glöð með það:)

Svo eru kennararnir (flestir) alveg miklu miklu skemmtilegri núna eftir jól virðist vera.. kannski því seinast þegar ég sá þá fyrir jól voru þeir í svo miklu stresskasti vegna prófanna svo munurinn er mikilll..

Dagurinn í dag er ekki búinn að vera sá besti sem ég hef lifað..Ekkert virðist ganga upp hjá mér.  Dæmi um það sem hefur gengið á:
  • Mamma skellti bílhurðinni fyrir framan mig og allur snjórinn af rúðunni hennar fór framaní mig
  • Efnafræðikennarinn var ömurlegur og hefði allt eins sagt það beint út: Erla og Berglind þið eruð heimskar
  • Kortið mitt var gleypt af hraðbanka því ég gleymdi að taka það úr
  • Ég ákvað að mála mig i skólanum og hnerraði þegar ég var búin að setja maskarann á..svo það þýddi bara (HAND!)sápa og nudda allt af og byrja aftur..
  • Gleymdi bæði efnafræði og tölvufræðibókum heima í morgun
  • Berglind og strákarnir ákváðu að kaffæra mesta aumingjanum.. Þegar kom að því að ákveða hver það væri leit Árni á mig með mjög sérstöku brosi sem sagði greinilega að ég væri aumingi.  Sem betur fer var ég nú samt ekki kaffærð
  • Árni sagði að ég væri lúði
  • Ég kom niðrí strætóskýli stuttu á eftir Berglindi, Tomma og Dabba.  Þar höfðu þau greinilega verið hlæjandi (að mér)..mikið glott
  • Það' fyrsta sem Berglind sagði þá við mig var: Erla mín gleymdirðu að greiða þér í morgun? (já hárið er svolítið úfið í dag)
  • Svo næ ég upp úr þeim hvað hafi verið aðhlátursefnið og þá kom í ljós að:
                   -ég er asnaleg að bíða inní skóla í hlýjunni aðeins lengur en þau bara til að verða ekki eins kalt
                   -ég var víst mjög kjánaleg í gær þegar ég rann eitthvað til og tók einhver kjánaleg spor til að bjarga mér
  • Svo í strætó stóð ég framan við þar sem Berglind og Tommi sátu.. Þegar vagninn fór af stað hentist ég svona næstum því í fangið á Tomma en náði svona naumlega að bjarga honum frá að fá mig og þunga skólatösku framanísig
  • Svo þegar ég var sest við hliðiná Berglindi þar sem Tommi hafði setið bað Berglind mig að halda aðeins á skólatöskunni sinni og ég MISSTI hana...hefði ekkert átt að gera það þar sem ég sat..með hana í fanginu.  Og ég var meira að segja mjög lengi að missa hana svo það var frekar kjánalegt..gerðist svona hægt eiginlega
  • Svo gleymdi strætóinn að beygja götuna sem hann átti að gera svo við Dabbi þurftum að fara út annars staðar en venjulega.  Jahá ég þurfti að stíga beint út á umferðareyju þar sem snjórinn náði mér næstum upp að hnjám.
  • Svo eyðilagði ég næstum 3 eldhústæki í einu þegar ég var að gera mér boozt.. frábært
Þannig að síðan það gerðist er ég bara búin að reyna að halda mig inni í herbergi og gera sem minnst... spurning hverju ég á von á í kvöld..

En ég ætla að segja þetta gott að sinni, vona að þetta svali bloggþorsta þínum í bili Berglind mín. 
Berglind og Erla
 Bless

Auglýsing

:)

Könnun

Hvernig eru sokkarnir á litinn?