5 dagar!
12. júní 2006 klukkan 15:52
Ó já . ég fór norður að vinna í nokkra daga fyrir viku.. það var bara næs sko. Við Eyrún gerðum kofan fínan og næs fyrir sumarið. Skelltum okkur svo einu sinni í lónið með strákunum, næs að hitta þá aftur! Fín ferð

Kom svo suður til að fara til tannlæknis á miðvikudaginn. Kallinn skoðaði mig ietthvað og svo var ákveðið að taka þessa auka í septemberbyrjun. Oh eins gott að það gerist ekki núna strax.
I fyrradag var ég að syngja uppá Akranesi og svo þegar ég kom í bæinn fór eg útað borða með strákunum á Trocadero og svo fórum við og tokum 2 spólur og fórum heim til Tomma. Ég og Pési létum eins og hálfvitar á leiðinni haha.. SVo lágum við þarna og horfðum á the exorsist, Skarpi kom og var memm og svo Berglind líka. Ég og Berglind vorum ekki alveg að fíla þetta og Skarpi hafðiséð myndina áður svo við vorum bara inní herbergi að rífa okkur við Finn á msn. yeah veit við gátum ekki fundið neitt betra á laugardagskvöldi haha. En svo fór Skarpi, við hin fórum útí 10-11 o ég keypti mér ananas og svo fórum við aftur heim til Tomma og horfðum á hina myndina sem átti að vera hræðileg en var ógeðslega leiðinleg. Berglind fór og svo fór ég einhvern tímann tæpega hálf 3 áður en myndin var búin ryendar... hún var ekkiþess virði

Í gær var ég löt. mjög svo, ég klæddi mig ekki og klukkan 4 þá ákvað ég nú að fara í sturtu og þegar ég va nýkomin úr sturtu komu Sigga og Eva að sækja mig og við fórum í Smáralindina.. KEyptum geðveika afmælisgjöf handa Gyðu og fórum vo til Siggu og gerðum kort og fórum til Gyðu. Þar kom svo Hanna líka en eitthvað rugl var á Steinunni og Hrönn að vinna. En þetta var sjúkt kvöld, grillað og svo bara ógeðslega mikið að flippa myndavélast og hafa það næs! Svo klukkan hálf 2 vorum við Sigga og Eva ennþá þarna, Gyða greyið að fara að vinna 6 tímum seinna og við höfðum ekki hugmynd hvernig við ættum að komast heim. Tókum á endanum bara leigubíl. Geðveikt boð Gyða

Nú eru bara 5 dagar í Ítalíu ég er að deyja úr spenningi! Eftir 5 sólarhringa verð ég í flugvélinni að fara að lenda bráðum...
Svo eftir 2 vikur kemur Nadía, ekki búin að hitta hana í heilt ár! Við erum allar að deyja hlökkum svo til!

OH ég er pirruð. Er með kveikt á útvarpinu á Xfm og það er ekki einu sinni hægt að hafa góða tónlist nei, þeir tala bara um HM. Oh þoli það ekki. HM hér, HM þar, HM það er alls staðar! Sí og æ, æ og sí, ég fæ alveg nóg af því.
Uppselt á Belle and Sebastian tónleikana á Nasa mig langar svo að það er ekki eðlilegt.. Er svona að pæla hvort maður ætti að splæsa í miða á Borgarfirði eystri 29.júlí og reyna að finna rútu frá Mývatni til Borgarfjarðar? Það er vissulega styttra en Mývatn - Reykjavík allavega.
Heyrðu jú núna tóku þeir uppá því að spiila Wherever I may Roam. . . . ekkert HM kjaftæði
Er farin til ömmu
Erla

:)
02. júní 2006 klukkan 19:06
Föstudagur 2.júní
Gamangaman búið að vera undanfarið já. Ég er búin að vera í "fríi" en hef samt haft nóg að gera.. Eg er búin að fara í Húsdýragarðinn, Kringluna og margt fleira svo ekki sé minnst á að þrífa klósettið og fleira spennandi hérna heima..Já fór í gær í Kringluna smá stund og mamma gaf mér föt og svo fór ég í mat uppí kirkju, vá sko ekkert sparað til þar! Starfsmenn Grensáskirkju saman komnir og grill og læti. Fór svo og hitti Skarpa og vini hans á Kaffi París og svo skelltum við okkur á X-men 3. Snilld. Ójá . . .

Svo á eftir er ég að fara að syngja í Tónlistarskóla Álftaness? eða Bessastaðahrepps? er einhver munur?.. Allavega og svo í kvöld ætla ég að reyna að Hoppa til Akureyrar klukkan 9 ef það verður laust, annars til Gyðu að syngja og hafa gaman. En ef ég fer norður þá fer ég svo í fyrramálið í Mývatnssveit að vinna með Eyrúnu, vinn þar í 4 daga og þarf svo að koma heim aftur á miðvkudaginn til að fara til tannlæknis
oj . oj . oj . oj . ég er hrædd
Annars ef ég get ekki farið í kvöld reyni ég bara að ná flugi í fyrramálið og og fara beint í sveitina.

15 dagar í Ítalíu gleðigleðigleði!!
SiggaSoffía er orðin rugluð held ég. Já hún er að fara til London á morgun í viku og svo fer hún með mér til Ítalíu og stelpan er búin að hlaða ipodinn sinn sérstaklega -fyrir ÍTALÍU.. róleg á að vera tilbúin snemma:P Já ég á eftir að byrja að pakka seint kvöldið áður, slæmur ávani!

Halldís ennþá á Spáni, Árni kom heim í nótt??
oj mig langar að fara til útlanda eins og allir hinir:(
Í bíóinu í gær var ekki beint eins og lukkan léki við mig ónei. Þegar myndin var búin stóðum við þarna og biðum eftir einhverju atriði sem átti að koma eftir Kredit-textann. Kjartan vinur Skarpa setti STÓRT kókglas upp á einhvern vegg á meðan hann lagaði sig eitthvað en rakst svo í það og það pompaði niður á gólf og ALLT yfir mig.. Annar skórinn minn drukknaði, fór eitthvað smá á Skarpa en ekkert á hina og ekki einn einasti dropi á Kjartan sjálfan. Vel gert ehh.. Mínútu seinna (ennþá í bíóinu) var Skarpi eitthvað að tjá sig og snéri sér svo eitthvað snöggt og kýldi mig í vörina, ekkert þægilegt sko. Æj greyið hvað hann afsakaði sig mikið hahaha snilld samt
Ekki eins og ég hafi verið eitthvað fúl
Ég er farin í sturtu. Bless!
Gamangaman búið að vera undanfarið já. Ég er búin að vera í "fríi" en hef samt haft nóg að gera.. Eg er búin að fara í Húsdýragarðinn, Kringluna og margt fleira svo ekki sé minnst á að þrífa klósettið og fleira spennandi hérna heima..Já fór í gær í Kringluna smá stund og mamma gaf mér föt og svo fór ég í mat uppí kirkju, vá sko ekkert sparað til þar! Starfsmenn Grensáskirkju saman komnir og grill og læti. Fór svo og hitti Skarpa og vini hans á Kaffi París og svo skelltum við okkur á X-men 3. Snilld. Ójá . . .

Svo á eftir er ég að fara að syngja í Tónlistarskóla Álftaness? eða Bessastaðahrepps? er einhver munur?.. Allavega og svo í kvöld ætla ég að reyna að Hoppa til Akureyrar klukkan 9 ef það verður laust, annars til Gyðu að syngja og hafa gaman. En ef ég fer norður þá fer ég svo í fyrramálið í Mývatnssveit að vinna með Eyrúnu, vinn þar í 4 daga og þarf svo að koma heim aftur á miðvkudaginn til að fara til tannlæknis
oj . oj . oj . oj . ég er hræddAnnars ef ég get ekki farið í kvöld reyni ég bara að ná flugi í fyrramálið og og fara beint í sveitina.

15 dagar í Ítalíu gleðigleðigleði!!
SiggaSoffía er orðin rugluð held ég. Já hún er að fara til London á morgun í viku og svo fer hún með mér til Ítalíu og stelpan er búin að hlaða ipodinn sinn sérstaklega -fyrir ÍTALÍU.. róleg á að vera tilbúin snemma:P Já ég á eftir að byrja að pakka seint kvöldið áður, slæmur ávani!

Halldís ennþá á Spáni, Árni kom heim í nótt??
oj mig langar að fara til útlanda eins og allir hinir:(
Í bíóinu í gær var ekki beint eins og lukkan léki við mig ónei. Þegar myndin var búin stóðum við þarna og biðum eftir einhverju atriði sem átti að koma eftir Kredit-textann. Kjartan vinur Skarpa setti STÓRT kókglas upp á einhvern vegg á meðan hann lagaði sig eitthvað en rakst svo í það og það pompaði niður á gólf og ALLT yfir mig.. Annar skórinn minn drukknaði, fór eitthvað smá á Skarpa en ekkert á hina og ekki einn einasti dropi á Kjartan sjálfan. Vel gert ehh.. Mínútu seinna (ennþá í bíóinu) var Skarpi eitthvað að tjá sig og snéri sér svo eitthvað snöggt og kýldi mig í vörina, ekkert þægilegt sko. Æj greyið hvað hann afsakaði sig mikið hahaha snilld samt
Ekki eins og ég hafi verið eitthvað fúl
Ég er farin í sturtu. Bless!
kosningadagur
28. maí 2006 klukkan 00:50
Kosningadagur í dag. Var niðrí bæ áðan og sá þar allt prúðbúna fólkið á leiðinni til kosninga og kíkti líka smá á kosningaskrifstofu VG. Allt á iði og frambjóðendur að nýta alla sína krafta til að reyna að sannfæra fólk um ágæti sitt á síðustu stundu. Ég elska svona daga, alveg sama hvort um sveitarstjórna- eða ríkisstjórnarkosningar er að ræða þá er maður eitthvað svo mikill Íslendingur á svona dögum eða þannig upplifi ég mig a.m.k.. Að vísu má ég ekki kjósa enn en maður reynir að hafa samt óbein áhrif með því að fá fólkið í kringum sig til að kjósa rétt
Vá. 4 ár í næstu borgarstjórnarkosningar og þá verð ég að verða 21..fúlt að þurfa að bíða svona lengi með að fá kosningarétt.. En verður að hafa það
Í dag var ég að syngja á geggjuðum tónleikum í Tjarnarbíói og gekk bara æðislega
Svo fór ég með pabba og Eygló systur áðan að fá okkur ís og svo vorum við að keyra heim og þá brunar sjúkrabíll framhjá okkur og þar sem ég var svo forvitin ákváðum við að elta sjúkrabílinn og gá hvað var í gangi.. hann fór út á Loftleiði og þar. og þá sá ég að þar var þyrla og fleiri sjúkrabílar og slökkviliðsmenn og eitthvað.. Þannig við drifum okkur heim að horfa á fréttirnar þar sem við fengum skýringuna...Eldsvoði í skipi úti á sjó og einhverjir menn dóu og eitthvað..sorglegt
3 vikur=21 dagar=504 klst=30240 mín í Ítalíu:D:D SJIBBí
Árni úti í Danmörku -að læra.. æj vorkenni honum..
Vá hvað mér finnst Dagur B. glataður!! hann er svo eitthvað...æj veit ekki en þó sýnu skárri en Gísli Marteinn..
Kveikti á sjónvarpinu í gærkvöldi..Bachelorette eða eitthvað..shit Skarpa fannst þetta glatað en mér fannst þetta allt í læ.. Af hverju? Af því að það er svo fyndið að horfa á þetta því þetta er svo kjánalegt að það er bara fyndið! wtf? fattaði ekki neitt sjálf í því sem ég skrifaði svo ekki reyna það heldur...
Kjósið rétt!

Vá. 4 ár í næstu borgarstjórnarkosningar og þá verð ég að verða 21..fúlt að þurfa að bíða svona lengi með að fá kosningarétt.. En verður að hafa þaðÍ dag var ég að syngja á geggjuðum tónleikum í Tjarnarbíói og gekk bara æðislega

Svo fór ég með pabba og Eygló systur áðan að fá okkur ís og svo vorum við að keyra heim og þá brunar sjúkrabíll framhjá okkur og þar sem ég var svo forvitin ákváðum við að elta sjúkrabílinn og gá hvað var í gangi.. hann fór út á Loftleiði og þar. og þá sá ég að þar var þyrla og fleiri sjúkrabílar og slökkviliðsmenn og eitthvað.. Þannig við drifum okkur heim að horfa á fréttirnar þar sem við fengum skýringuna...Eldsvoði í skipi úti á sjó og einhverjir menn dóu og eitthvað..sorglegt

3 vikur=21 dagar=504 klst=30240 mín í Ítalíu:D:D SJIBBí
Árni úti í Danmörku -að læra.. æj vorkenni honum..
Vá hvað mér finnst Dagur B. glataður!! hann er svo eitthvað...æj veit ekki en þó sýnu skárri en Gísli Marteinn..
Kveikti á sjónvarpinu í gærkvöldi..Bachelorette eða eitthvað..shit Skarpa fannst þetta glatað en mér fannst þetta allt í læ.. Af hverju? Af því að það er svo fyndið að horfa á þetta því þetta er svo kjánalegt að það er bara fyndið! wtf? fattaði ekki neitt sjálf í því sem ég skrifaði svo ekki reyna það heldur...
Kjósið rétt!
ÉG NÁĐI ÖLLU!!!:D
25. maí 2006 klukkan 02:29
Já þú last rétt, ég náði öllum vorprófunum og get því með glöðu geði haldið áfram í 4.bekk á næsta ári, engin endurtökupróf eða neitt:) vá hvað ég er glöð. Einkunnirnar náðu frá 4 upp í 10..Já ég er greinilega ekki mjög jöfn manneskja en það verður að hafa það, vorprófin voru: 8-10-9-9-8-6-7-4-9-7-9 já oj.. 6 í íþróttum og 4 í sögu.. greinilegt hvað eru verstu fögin mín
en´eg er er samt ánægð

sumarfrí!!
en´eg er er samt ánægð

sumarfrí!!
heyrist MEEE
22. maí 2006 klukkan 19:48
Sko. Ég reyndi að blogga 3 sinnum daginn sem prófin kláruðust, ýtti alltaf á einhvern takka og tókst að eyða þessum flottu bloggum sem ég var búin að gera, svona í alvöru, þau voru öll löng og mjög flott. Því miður get ég ekkert gert svoleiðis aftur.
Prófin kláruðust seinasta fimmtudag, langþráð frí núna, á miðvikudaginn fáum við svo einkunnir og þá tekur við 2 vikur af lærdómi fyrir endurtekningarpróf í sögu þar sem ég er 142% viss að ég fell. Því miður! Þessi próf voru eitt stórt stress, 10 próf í skólanum og 2 í tónlistinni, allt í einu. Gekk nú reyndar vel í þessum 2 seinni nefndu, 9 í píanóinu og 9,4 í söngnum. Mjöög ánægð með það
Svo er bara að bíða og sjá með hinar einkunnirnar.
Eurovision á fimmtudaginn, fór heim til Ella- komst að því að ég kann ekki að grilla og komst líka að öðru, Eurovision er ekkert svo skemmtilegt enda horfði ég eiginlega ekki á það á laugardaginn. Þreytt eftir 10 ára afmæli sem sysitr mín hafði haldið upp á um daginn. Fullt hús af fólki já
Ég titra og skelf núna, vá. Undanfarið hef ég tekið eftir því að tennurnar mínar hafa örlítið skekkst, önnur framtönnin er farin að þrýsta sér fram fyrir hina og mér var ekkert sama, þetta er það lítið að fæstir taka eftir þessu en ég hætti samt ekki að tala um þetta fyrr en mamma pantaði tíma hjá tannlækni fyrir mig. Fór þangað áðan og jújú fyrst sagði hun að þetta væri bara eitthvað sem væri eðlilegt og gerist oft a þessum aldri. Ákvað samt að taka röntgen mynd til öryggis. og OJ. ég er með aukatönn, auka, já eitt stykki sem á ekkert að vera þarna og hún er í miðjunni fyrir ofan framtennurnar og er að ýta þeim til núna. Svo það var pantaður tími hjá mér hjá einhverjum tannskurðlækni 7 júní oj. Það þarf að taka þetta, veit reyndar ekki hvenær og það þýðir deyfing=SPRAUTA, og taka tönnina=HNÍFUR! Flestir sem þekkja mig vita að mér er ekki jafnilla við neitt og hnífa og sprautur þetta er agalegt ástand, en þetta er víst eitthvað sem ég verð að gera.
Það þýðir að ég get ekki farið að vinna í Mývatnssveit áður en ég fer til Ítalíu
Hafði hugsað mér að fara þangað að vinna í byrjun júní og vinna þá í 2 vikur eða eitthvað til að fá smá pening áður en ég fer til Ítalíu...munar alveg um það sko en nei þessi tannlæknatími er akkúrat þar í miðjunni sem þýðir að eg get ekkert farið norður og verð bara hér að gera ekki neitt!
Shit. Þá byrja ég bara að vinna eftir að ég kem heim frá Ítalíu sem er þá í byrjun júlí. Vá langt þangað til.
26 dagar í ÍTALÍU!! get ekki beðið
Halldís búin að vera á einhverju AFS námskeiði núna heilu og hálfu dagana til að undirbúa Spánar-ferðina, vá maður á eftir að sakna!
91,9
Amma kom í gær úr sveitinni, endalaust notalegt að hafa hana hérna heima hjá mér
Fólk í burtu um helgina hvað á það að þýða!?! Dabbi uppí bústað alla helgina, Guðlaug uppí bústað og Skarpi uppí sveit! Jæjaa
Farin að gera eitthvað skemmtilegt, allir eru að vinna nema ég míímíí!!

bæ
Prófin kláruðust seinasta fimmtudag, langþráð frí núna, á miðvikudaginn fáum við svo einkunnir og þá tekur við 2 vikur af lærdómi fyrir endurtekningarpróf í sögu þar sem ég er 142% viss að ég fell. Því miður! Þessi próf voru eitt stórt stress, 10 próf í skólanum og 2 í tónlistinni, allt í einu. Gekk nú reyndar vel í þessum 2 seinni nefndu, 9 í píanóinu og 9,4 í söngnum. Mjöög ánægð með það
Svo er bara að bíða og sjá með hinar einkunnirnar.Eurovision á fimmtudaginn, fór heim til Ella- komst að því að ég kann ekki að grilla og komst líka að öðru, Eurovision er ekkert svo skemmtilegt enda horfði ég eiginlega ekki á það á laugardaginn. Þreytt eftir 10 ára afmæli sem sysitr mín hafði haldið upp á um daginn. Fullt hús af fólki já
Ég titra og skelf núna, vá. Undanfarið hef ég tekið eftir því að tennurnar mínar hafa örlítið skekkst, önnur framtönnin er farin að þrýsta sér fram fyrir hina og mér var ekkert sama, þetta er það lítið að fæstir taka eftir þessu en ég hætti samt ekki að tala um þetta fyrr en mamma pantaði tíma hjá tannlækni fyrir mig. Fór þangað áðan og jújú fyrst sagði hun að þetta væri bara eitthvað sem væri eðlilegt og gerist oft a þessum aldri. Ákvað samt að taka röntgen mynd til öryggis. og OJ. ég er með aukatönn, auka, já eitt stykki sem á ekkert að vera þarna og hún er í miðjunni fyrir ofan framtennurnar og er að ýta þeim til núna. Svo það var pantaður tími hjá mér hjá einhverjum tannskurðlækni 7 júní oj. Það þarf að taka þetta, veit reyndar ekki hvenær og það þýðir deyfing=SPRAUTA, og taka tönnina=HNÍFUR! Flestir sem þekkja mig vita að mér er ekki jafnilla við neitt og hnífa og sprautur þetta er agalegt ástand, en þetta er víst eitthvað sem ég verð að gera.
Það þýðir að ég get ekki farið að vinna í Mývatnssveit áður en ég fer til Ítalíu
Hafði hugsað mér að fara þangað að vinna í byrjun júní og vinna þá í 2 vikur eða eitthvað til að fá smá pening áður en ég fer til Ítalíu...munar alveg um það sko en nei þessi tannlæknatími er akkúrat þar í miðjunni sem þýðir að eg get ekkert farið norður og verð bara hér að gera ekki neitt!
Shit. Þá byrja ég bara að vinna eftir að ég kem heim frá Ítalíu sem er þá í byrjun júlí. Vá langt þangað til. 26 dagar í ÍTALÍU!! get ekki beðið
Halldís búin að vera á einhverju AFS námskeiði núna heilu og hálfu dagana til að undirbúa Spánar-ferðina, vá maður á eftir að sakna!
91,9
Amma kom í gær úr sveitinni, endalaust notalegt að hafa hana hérna heima hjá mér
Fólk í burtu um helgina hvað á það að þýða!?! Dabbi uppí bústað alla helgina, Guðlaug uppí bústað og Skarpi uppí sveit! Jæjaa
Farin að gera eitthvað skemmtilegt, allir eru að vinna nema ég míímíí!!

bæ
lög
17. maí 2006 klukkan 22:12
ég nenni ekki að læra spænsku.. þess vegna ætla ég að herma eftir Hrefnu (>hrefna.hexia.net<) og gera nokkuð sem hún gerði fyrir nokkrum dögum
reyna svo að taka þátt!
1. skref: Settu MP3spilarann/iTunes whatever á Shuffle
2. skref: Skrifaðu niður línu úr fyrstu 20 lögunum sem koma og skiptir þá engu hversu vandræðalegt lagið er.
3. skref: Gerðu það að bloggi og láttu alla sem að þú þekkir giska í hvaða lagi og eftir hvern línan er
4. skref: Strikaðu út þau lög sem að einhver giskar rétt (undirstrika þegar aðeins flytjandi/nafn lags er nefnt)
5. skref: Ef Google og aðrar leitavélar eru notaðar er það SVINDL!!
Lag 1: ABBA - Thank you for the music
Im nothing special, in fact Im a bit of a bore
Lag 2: The Beatles - She loves you
You think you've lost your love, when I saw her yesterday
Lag 3: Metallica - -Human
You got to breathe man, breathe!
Lag 4: Coldplay - What if?
What if there was no light.
Nothing wrong, nothing right.
Lag 5: Led Zeppelin - Babe, I'm gonna leave you
I know, I never leave you baby.
Lag 6: Hrekkjusvín - Afasöngur
Krakkar mínir, krakkar mínir, þegar ég á sjónum var
Lag 7: Metallica - Hero of the day
The window burns to light the way back home
Lag 8:
Four drops out of the jar fell
Lag 9: Paul Simon - Still crazy after all these years
I met my old lover on the street last night
Lag 10:
Læðast fínu fötin í og flétta hár og greiða
Lag 11: Selma - all out of luck
'Cause you know today won't last forever
Lag 12: Bob Marley- Exodus
Men and people will fight ya down
Lag 13:
Á borðinu stendur mynd af mér og Kristi
Lag 14: T.a.t.u. - All the things she said
I'm in serious shit, I feel totally lost
Lag 15:
Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn með þér
Lag 16:
Seems like forever (and a day), thought I could never feel this way
Lag 17: The Stranglers - Strange little girl
She didn't know how to live in a town that was rough
Lag 18:
Þegar ísinn leggur tjörn skauta hraust og stálpuð börn
Lag 19: Ragnheiður Gröndal/Magnús Þór Sigmundsson - Ást
Svölun í sumarsins eldi og sólbráð í vetrarins ís
Lag 20: Guns n' roses - Don't cry
I know how you feel inside I've..I've been there before
gangi ykkur vel
reyna svo að taka þátt!1. skref: Settu MP3spilarann/iTunes whatever á Shuffle
2. skref: Skrifaðu niður línu úr fyrstu 20 lögunum sem koma og skiptir þá engu hversu vandræðalegt lagið er.
3. skref: Gerðu það að bloggi og láttu alla sem að þú þekkir giska í hvaða lagi og eftir hvern línan er
4. skref: Strikaðu út þau lög sem að einhver giskar rétt (undirstrika þegar aðeins flytjandi/nafn lags er nefnt)
5. skref: Ef Google og aðrar leitavélar eru notaðar er það SVINDL!!
Lag 1: ABBA - Thank you for the music
Lag 2: The Beatles - She loves you
Lag 3: Metallica - -Human
Lag 4: Coldplay - What if?
What if there was no light.
Nothing wrong, nothing right.
Lag 5: Led Zeppelin - Babe, I'm gonna leave you
Lag 6: Hrekkjusvín - Afasöngur
Lag 7: Metallica - Hero of the day
Lag 8:
Four drops out of the jar fell
Lag 9: Paul Simon - Still crazy after all these years
Lag 10:
Læðast fínu fötin í og flétta hár og greiða
Lag 11: Selma - all out of luck
Lag 12: Bob Marley- Exodus
Lag 13:
Á borðinu stendur mynd af mér og Kristi
Lag 14: T.a.t.u. - All the things she said
Lag 15:
Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn með þér
Lag 16:
Seems like forever (and a day), thought I could never feel this way
Lag 17: The Stranglers - Strange little girl
Lag 18:
Þegar ísinn leggur tjörn skauta hraust og stálpuð börn
Lag 19: Ragnheiður Gröndal/Magnús Þór Sigmundsson - Ást
Lag 20: Guns n' roses - Don't cry
I know how you feel inside I've..I've been there before
gangi ykkur vel
misskilningur.is
11. maí 2006 klukkan 23:43
Vá. ég hef nú hingað til talið mig skilja dönsku bara nokkuð vel. Sú kenning flaug út um gluggann í dag.
Ég var að lesa dönsku söguna Glansbilleder þar sem blindur maður byrjar í "tilfinningalegu glerbúri" og enginn kemst að honum. Svo kynnist hann lítilli stelpu, þau verða vinir og hann hleypir henn inn, þ.e.a.s. leyfir henni að tala við sig og talar við hana. Allt gerist þetta á bekk við leikvöll. Þegar svo þeim er stíað í sundur af konu sem telur hann barnaníðing fer hann aftur inn i "glerbúrið sitt" og verður lokaður aftur.
Nú ætla ég að segja hvernig ég skildi söguna:
Maður með dökk sólgleraugu í leðurjakka var innan í einhverju búri (þá alvöru, áþreifanlegu búri). Svo kemur einhver stelpa og fer að tala við hann á hverjum degi og þau verða vinir. Svo einn daginn faðmar hún hann af því hann gaf henni eitthvað og þá strauk hann henni um hárið til að gá hvort hún liti út eins og hann hafði ímyndað sér og þá fattar maður að hann er blindur. Svo kemur kona og stíar þeim í sundur, telur hann barnaníðing. Þá fer hann og stendur hjá leikvellinum og fremur sjálfsmorð og drepur hundinn sinn og lítill krakki öskrar. Hann áttaði sig á því að það hefði bara verið pláss í sjálfsmorðinu fyrir hann og hundinn en ekki fyrir litlu stelpuna því hinn sanni ásetningur hans hafði verið að drepa stelpuna, hundinn og sjálfan sig öll 3.
Ekki hægt að misskilja meira!
vá hvað ég er heimsk

próf
10. maí 2006 klukkan 21:17
ójá. ég var að koma heim úr jarðfræðiprófinu.. góður skítur þar á ferð. Sko prófið var alltof alltof langt fyrir mig að ná að klára á einum og hálfum tíma en það sem ég hafði tíma til gekk bara vel.. vonandi 7
. Þetta allavega var mjög gott próf, samanborið við söguna í fyrradag sem ég gjörsamlega klúðraði.. fall í nánd
?
Ótrúlegt hvað er búið að vera gott veður núna undanfarið!!Alveg dæmigert, rigningin kemur þegar ég er loksins búin í prófum og hef allan heimsins tíma til að fara í sund og vera úti í góða veðrinu. Niii ég trúi þvi ekki það getur bara ekki verið.. Sól, sól skín á Erlu.
Eftir prófið plataði Berglind mig með sér til að taka 6una með sér í staðinn fyrir að taka 11una.. Við föttuðum að við vorum að missa af vagninum svo við hlupum af stað, ruddum okkur leið á milli fólks og rétt misstum af strætónum típískt.. við sátum þá bara niðrí Vonarstrætó og bæði 5an og 3urinn fóru framhjá án þess að ég færi í þá því ég var svo góð að bíða með berglindi og taka með henni næstu 6u.. Svo er ég að blogga núna vegna þrýstings frá.. berglindi hverjum öðrum
En ég verð að drífa mig er að verða sein í píanó.

hahahaha Berglind...manstu?? góðar minningar góðar minningar:)
. Þetta allavega var mjög gott próf, samanborið við söguna í fyrradag sem ég gjörsamlega klúðraði.. fall í nánd
?Ótrúlegt hvað er búið að vera gott veður núna undanfarið!!
Eftir prófið plataði Berglind mig með sér til að taka 6una með sér í staðinn fyrir að taka 11una.. Við föttuðum að við vorum að missa af vagninum svo við hlupum af stað, ruddum okkur leið á milli fólks og rétt misstum af strætónum típískt.. við sátum þá bara niðrí Vonarstrætó og bæði 5an og 3urinn fóru framhjá án þess að ég færi í þá því ég var svo góð að bíða með berglindi og taka með henni næstu 6u.. Svo er ég að blogga núna vegna þrýstings frá.. berglindi hverjum öðrum

En ég verð að drífa mig er að verða sein í píanó.

hahahaha Berglind...manstu?? góðar minningar góðar minningar:)
Ný síđa.. ♥
07. maí 2006 klukkan 02:29
Já. ég er nú búin að vera með síðu á blog.central í meira en 2 ár núna og tími til kominn að breyta til! Ég prófaði eitt sinn folk.is, það var ruuugl svo ég hef ákveðið að setjast að hér, a.m.k. í bili.. Hingað til þegar ég hef valið aðrar síður t.d. blogspot þá hef ég nú alltaf snúið aftur á blog.central... Vonum bara að þessi síða heppnist
Prófin eru byrjuð. SHIT. skítur. saur. GARG! Ég get ekki tjáð mig almennilega án þess bara að fara að grenja eða eitthvað. Sko ætla að reyna samt.
Félagsfræði
Féló var tekin í seinustu kennsluvikunni eftir skóla á þriðjudegi. Hvað er málið með það?? Og það stúdentspróf. Ég tók þessu nú bara rólega, var ekkert að fara á taugum enda er félagsfræði svona próf sem maður kemst ansi langt á skynseminni einni saman. Ég las svona hluta efnisins á mánudeginum og mætti nokkuð jákvæð bara í prófið. NEI er ekki prófið bara svona svakalega erfitt.. eða mér fannst það, ég gleymdi öllu sem ég hafði nýlokið við að læra. En ég hlýt nú að ná þessu, annað getur ekki verið. Reyndar finnst mér félagsfræði svo leiðinleg að hún skiptir mig engu máli..vona það besta
Stærðfræði
Ég hef nú hingað til ekkert talið stærðfræði mitt lakasta fag, frekar eitt af þeim bestu. Ég er ekki lengur svo viss. Ég hef aldrei á ævinni skitið svona hrikalega á mig í einu prófi! Var búin að læra alveg slatta, gerði svo líka prófin frá 2004 og 2005 og fannst þau svo létt að tók því varla að gera þau eða þú veist.. Kem ég ekki í prófið og mér gjörsamlega féllust hendur! Þetta var svo erfitt og ég skildi svo mikið autt held að allt sem ég gerði hafi verið 64 stig af 100. sem þýðir að ef ég er með það allt rétt er ég með 6 en ég er ekki svo viss um það. Fall í stærðfræði? Ég treysti bara á Guð og lukkuna og vonast til að ná þessu og svo tek ég mig á maður fyrir næsta vorpróf.
Íslenskur stíll
Tímaritgerð, fengum 7 ritgerðarefni og 2,5 klst til að taka prófið. Það tók mig korter að velja efnið, ekki auðveld efni. En tókst nú á endanum að pína út 4 blaðsíður um 16 ára og fullorðin? ójá. Tja þetta gekk nú bara ágætlega.
Íslensk fræði
jkdsaæfj alækdsjafælkd ! ég+íslenska=venjulega gott match. Ekki í gær! ónei. Ég vissi ekki neitt hvað ég átti að skrifa í neinni af bókmenntaspurningunum og svo bara var líka setningafræðin algjört rugl, stærsti hluti prófsins!
því miður. En ég næ, það get ég verið nokkuð viss um.
Málið í íslenskuprófinu var að ég var bara að deyja í maganum af stressi fyrir annað próf, já ég var að taka grunnstigið í söng beint eftir íslenskuna. Ég kom þarna já með hnút í maganum en svosem í geðveiku skapi og þvílíkt hress bara:D Svo magnaðist spennan og svo að lokum kom að þessu. Ég ákvað að byrja á æfingunum og blaðlestrinum. Var svo stressuð til að byrja með að ég gaulaði þarna eins og kettlingur eða eitthvað. Svo þegar kom að blaðlestrinum var ég stressuð líka því ég frétti að allir hefðu verið að klúðra honum. Svo gekk mér bara svona líka vel í því
Svo þegar maðurinn sem dæmdi sagði mér hvaða lag hann veldi sem 5 lagið sem ég átti að syngja þá hélt ég að liði yfir mig. Hann valdi lag sem ég hef sungið 1 sinni eða 2 í söngtíma og er þarna BARA af því mig vantaði íslenskt þjóðlag. Svo segir hann: já best að fá það er svo margt ef að er gáð. Hefði mátt velja hin lögin, þess vegna Wiegenlied (Brahms) en bara EKKI þetta en svo fór nú samt. Ég söng þetta svo þarna eins og hálfviti og í eina skiptið sem hann leit upp frá blaðinu allt þetta lag ruglaðist ég á textanum. TÝPÍSKT FYRIR MIG! Já ruglaðist líka í einu öðru lagi og það er eitthvað sem ég átti ekki að gera, a.m.k. ekki í því lagi. Nei þannig er það að alltaf virðist maður klikka á því sem maður kann best. En hey, ég náði og þá er ég sátt - fæ svo einkunnina eftir 10 daga eða svo
Núna er það saga á mánudaginn. SAGA.SAGA.SAGA. vita ekki allir hvað það þýðir?fall? nii vonandi ekki en gæti farið nálægt því. Fékk 5 á jólaprófinu eða eitthvað og 6 í námseinkunn. Ég get ekki rass í sögu. Mér finnst hún leiðinleg, óáhugaverð til að læra. Mér finnst ágætt að lesa hana svona mér til skemmtunar og gaman að vita eitthvað um Rómaveldi og miðaldir en nei, ekki læra þessar endalausu upptalningar á keisurum og allt það. Ekki mitt fag, ég hef bara nákvæmlega engan á huga á þessu
Já.. fór í gærkvöldi að syngja í Iðnó í einhverju afmæli. Við mamma ætluðum að leggaj bílnum í ráðhúskjallaranum þar sem lítið var um laus stæði í miðbænum. En nei tókst okkur ekki bara að villast þarna inni í bílastæðahúsi. Við vorum eins og hálfvitar ég hljóp í þessa áttina og hún hina að leita að dyrum sem voru ekki LÆSTAR. Tókst nú víst á endanum en og við urðum ekki of seinar eins og við höfðum óttast. Fór svo eftir það til Skarpa og við horfðum á mynd, minnir að hún hafi heitið The forgotten. eða nei ég man það ekki. Freaky mynd - algjört bull og alltof flókin svo ég skildi ekki neitt í henni frekar en ég geri venjulega þegar ég horfi á flóknar myndir. En svo var ég þar bara eitthvað og fór svo heim.
Gaman gaman í dag, vorum að syngja á tónleikum og það gekk bara svona vel, í loftkastalanum vá það dregur fram gamlar minningar..eldgamlar..
Ah shit var að fatta að ég átti að hringja í píanókennarann minn seinasta mánudag og fá tíma í vikunni er nefnilega að fara í próf í þeirri næstu en núna er kominn laugardagur og ég ekki enn búin að hringja. AHHH hvernig gat ég gleymt þessu, er ég asni
allt í rugli
Ætla að enda þetta hér með, allir sem eru í prófum gangi ykkur vel og að sjálfsögðu hinum líka
Erla. . . . . . . . . . .

Prófin eru byrjuð. SHIT. skítur. saur. GARG! Ég get ekki tjáð mig almennilega án þess bara að fara að grenja eða eitthvað. Sko ætla að reyna samt.
Félagsfræði
Féló var tekin í seinustu kennsluvikunni eftir skóla á þriðjudegi. Hvað er málið með það?? Og það stúdentspróf. Ég tók þessu nú bara rólega, var ekkert að fara á taugum enda er félagsfræði svona próf sem maður kemst ansi langt á skynseminni einni saman. Ég las svona hluta efnisins á mánudeginum og mætti nokkuð jákvæð bara í prófið. NEI er ekki prófið bara svona svakalega erfitt.. eða mér fannst það, ég gleymdi öllu sem ég hafði nýlokið við að læra. En ég hlýt nú að ná þessu, annað getur ekki verið. Reyndar finnst mér félagsfræði svo leiðinleg að hún skiptir mig engu máli..vona það besta
Stærðfræði
Ég hef nú hingað til ekkert talið stærðfræði mitt lakasta fag, frekar eitt af þeim bestu. Ég er ekki lengur svo viss. Ég hef aldrei á ævinni skitið svona hrikalega á mig í einu prófi! Var búin að læra alveg slatta, gerði svo líka prófin frá 2004 og 2005 og fannst þau svo létt að tók því varla að gera þau eða þú veist.. Kem ég ekki í prófið og mér gjörsamlega féllust hendur! Þetta var svo erfitt og ég skildi svo mikið autt held að allt sem ég gerði hafi verið 64 stig af 100. sem þýðir að ef ég er með það allt rétt er ég með 6 en ég er ekki svo viss um það. Fall í stærðfræði? Ég treysti bara á Guð og lukkuna og vonast til að ná þessu og svo tek ég mig á maður fyrir næsta vorpróf.
Íslenskur stíll
Tímaritgerð, fengum 7 ritgerðarefni og 2,5 klst til að taka prófið. Það tók mig korter að velja efnið, ekki auðveld efni. En tókst nú á endanum að pína út 4 blaðsíður um 16 ára og fullorðin? ójá. Tja þetta gekk nú bara ágætlega.
Íslensk fræði
jkdsaæfj alækdsjafælkd ! ég+íslenska=venjulega gott match. Ekki í gær! ónei. Ég vissi ekki neitt hvað ég átti að skrifa í neinni af bókmenntaspurningunum og svo bara var líka setningafræðin algjört rugl, stærsti hluti prófsins!
því miður. En ég næ, það get ég verið nokkuð viss um.Málið í íslenskuprófinu var að ég var bara að deyja í maganum af stressi fyrir annað próf, já ég var að taka grunnstigið í söng beint eftir íslenskuna. Ég kom þarna já með hnút í maganum en svosem í geðveiku skapi og þvílíkt hress bara:D Svo magnaðist spennan og svo að lokum kom að þessu. Ég ákvað að byrja á æfingunum og blaðlestrinum. Var svo stressuð til að byrja með að ég gaulaði þarna eins og kettlingur eða eitthvað. Svo þegar kom að blaðlestrinum var ég stressuð líka því ég frétti að allir hefðu verið að klúðra honum. Svo gekk mér bara svona líka vel í því
Svo þegar maðurinn sem dæmdi sagði mér hvaða lag hann veldi sem 5 lagið sem ég átti að syngja þá hélt ég að liði yfir mig. Hann valdi lag sem ég hef sungið 1 sinni eða 2 í söngtíma og er þarna BARA af því mig vantaði íslenskt þjóðlag. Svo segir hann: já best að fá það er svo margt ef að er gáð. Hefði mátt velja hin lögin, þess vegna Wiegenlied (Brahms) en bara EKKI þetta en svo fór nú samt. Ég söng þetta svo þarna eins og hálfviti og í eina skiptið sem hann leit upp frá blaðinu allt þetta lag ruglaðist ég á textanum. 
Núna er það saga á mánudaginn. SAGA.SAGA.SAGA. vita ekki allir hvað það þýðir?

Já.. fór í gærkvöldi að syngja í Iðnó í einhverju afmæli. Við mamma ætluðum að leggaj bílnum í ráðhúskjallaranum þar sem lítið var um laus stæði í miðbænum. En nei tókst okkur ekki bara að villast þarna inni í bílastæðahúsi. Við vorum eins og hálfvitar ég hljóp í þessa áttina og hún hina að leita að dyrum sem voru ekki LÆSTAR. Tókst nú víst á endanum en og við urðum ekki of seinar eins og við höfðum óttast. Fór svo eftir það til Skarpa og við horfðum á mynd, minnir að hún hafi heitið The forgotten. eða nei ég man það ekki. Freaky mynd - algjört bull og alltof flókin svo ég skildi ekki neitt í henni frekar en ég geri venjulega þegar ég horfi á flóknar myndir. En svo var ég þar bara eitthvað og fór svo heim.
Gaman gaman í dag, vorum að syngja á tónleikum og það gekk bara svona vel, í loftkastalanum vá það dregur fram gamlar minningar..eldgamlar..
Ah shit var að fatta að ég átti að hringja í píanókennarann minn seinasta mánudag og fá tíma í vikunni er nefnilega að fara í próf í þeirri næstu en núna er kominn laugardagur og ég ekki enn búin að hringja. AHHH hvernig gat ég gleymt þessu, er ég asni
allt í rugliÆtla að enda þetta hér með, allir sem eru í prófum gangi ykkur vel og að sjálfsögðu hinum líka

Erla. . . . . . . . . . .