Prófíll

  • Nafn: Erla
  • Netfang: erlak@mr.is
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: Einar

Leit

Fréttir

-styttist í vorpróf
-miiikiđ ađ gera
-styttist í Halldísi, 19.júlí
-og Ítalíu 11.júní

Innskráningar kubbur

Ný síđa.. ♥

07. maí 2006 klukkan 02:29
Já. ég er nú búin að vera með síðu á blog.central í meira en 2 ár núna og tími til kominn að breyta til! Ég prófaði eitt sinn folk.is, það var ruuugl svo ég hef ákveðið að setjast að hér, a.m.k. í bili.. Hingað til þegar ég hef valið aðrar síður t.d. blogspot þá hef ég nú alltaf snúið aftur á blog.central... Vonum bara að þessi síða heppnistHlæjandi

Prófin eru byrjuð. SHIT. skítur. saur. GARG! Ég get ekki tjáð mig almennilega án þess bara að fara að grenja eða eitthvað. Sko ætla að reyna samt.

Félagsfræði
Féló var tekin í seinustu kennsluvikunni eftir skóla á þriðjudegi. Hvað er málið með það?? Og það stúdentspróf. Ég tók þessu nú bara rólega, var ekkert að fara á taugum enda er félagsfræði svona próf sem maður kemst ansi langt á skynseminni einni saman. Ég las svona hluta efnisins á mánudeginum og mætti nokkuð jákvæð bara í prófið. NEI er ekki prófið bara svona svakalega erfitt.. eða mér fannst það, ég gleymdi öllu sem ég hafði nýlokið við að læra. En ég hlýt nú að ná þessu, annað getur ekki verið. Reyndar finnst mér félagsfræði svo leiðinleg að hún skiptir mig engu máli..vona það besta

Stærðfræði
Ég hef nú hingað til ekkert talið stærðfræði mitt lakasta fag, frekar eitt af þeim bestu. Ég er ekki lengur svo viss. Ég hef aldrei á ævinni skitið svona hrikalega á mig í einu prófi! Var búin að læra alveg slatta, gerði svo líka prófin frá 2004 og 2005 og fannst þau svo létt að tók því varla að gera þau eða þú veist.. Kem ég ekki í prófið og mér gjörsamlega féllust hendur! Þetta var svo erfitt og ég skildi svo mikið autt held að allt sem ég gerði hafi verið 64 stig af 100. sem þýðir að ef ég er með það allt rétt er ég með 6 en ég er ekki svo viss um það. Fall í stærðfræði? Ég treysti bara á Guð og lukkuna og vonast til að ná þessu og svo tek ég mig á maður fyrir næsta vorpróf.

Íslenskur stíll
Tímaritgerð, fengum 7 ritgerðarefni og 2,5 klst til að taka prófið. Það tók mig korter að velja efnið, ekki auðveld efni. En tókst nú á endanum að pína út 4 blaðsíður um 16 ára og fullorðin? ójá. Tja þetta gekk nú bara ágætlega.

Íslensk fræði
jkdsaæfj alækdsjafælkd ! ég+íslenska=venjulega gott match. Ekki í gær! ónei. Ég vissi ekki neitt hvað ég átti að skrifa í neinni af bókmenntaspurningunum og svo bara var líka setningafræðin algjört rugl, stærsti hluti prófsins!Hissaþví miður. En ég næ, það get ég verið nokkuð viss um.

Málið í íslenskuprófinu var að ég var bara að deyja í maganum af stressi fyrir annað próf, já ég var að taka grunnstigið í söng beint eftir íslenskuna. Ég kom þarna já með hnút í maganum en svosem í geðveiku skapi og þvílíkt hress bara:D Svo magnaðist spennan og svo að lokum kom að þessu. Ég ákvað að byrja á æfingunum og blaðlestrinum. Var svo stressuð til að byrja með að ég gaulaði þarna eins og kettlingur eða eitthvað. Svo þegar kom að blaðlestrinum var ég stressuð líka því ég frétti að allir hefðu verið að klúðra honum. Svo gekk mér bara svona líka vel í þvíBrosandi Svo þegar maðurinn sem dæmdi sagði mér hvaða lag hann veldi sem 5 lagið sem ég átti að syngja þá hélt ég að liði yfir mig. Hann valdi lag sem ég hef sungið 1 sinni eða 2 í söngtíma og er þarna BARA af því mig vantaði íslenskt þjóðlag. Svo segir hann: já best að fá það er svo margt ef að er gáð. Hefði mátt velja hin lögin, þess vegna Wiegenlied (Brahms) en bara EKKI þetta en svo fór nú samt. Ég söng þetta svo þarna eins og hálfviti og í eina skiptið sem hann leit upp frá blaðinu allt þetta lag ruglaðist ég á textanum. TÝPÍSKT FYRIR MIG! Já ruglaðist líka í einu öðru lagi og það er eitthvað sem ég átti ekki að gera, a.m.k. ekki í því lagi. Nei þannig er það að alltaf virðist maður klikka á því sem maður kann best. En hey, ég náði og þá er ég sátt - fæ svo einkunnina eftir 10 daga eða svoÓákveðinn

Núna er það saga á mánudaginn. SAGA.SAGA.SAGA. vita ekki allir hvað það þýðir? fall? nii vonandi ekki en gæti farið nálægt því. Fékk 5 á jólaprófinu eða eitthvað og 6 í námseinkunn. Ég get ekki rass í sögu. Mér finnst hún leiðinleg, óáhugaverð til að læra. Mér finnst ágætt að lesa hana svona mér til skemmtunar og gaman að vita eitthvað um Rómaveldi og miðaldir en nei, ekki læra þessar endalausu upptalningar á keisurum og allt það. Ekki mitt fag, ég hef bara nákvæmlega engan á huga á þessuSkömmustulegur

Já.. fór í gærkvöldi að syngja í Iðnó í einhverju afmæli. Við mamma ætluðum að leggaj bílnum í ráðhúskjallaranum þar sem lítið var um laus stæði í miðbænum. En nei tókst okkur ekki bara að villast þarna inni í bílastæðahúsi. Við vorum eins og hálfvitar ég hljóp í þessa áttina og hún hina að leita að dyrum sem voru ekki LÆSTAR. Tókst nú víst á endanum en og við urðum ekki of seinar eins og við höfðum óttast. Fór svo eftir það til Skarpa og við horfðum á mynd, minnir að hún hafi heitið The forgotten. eða nei ég man það ekki. Freaky mynd - algjört bull og alltof flókin svo ég skildi ekki neitt í henni frekar en ég geri venjulega þegar ég horfi á flóknar myndir. En svo var ég þar bara eitthvað og fór svo heim.

Gaman gaman í dag, vorum að syngja á tónleikum og það gekk bara svona vel, í loftkastalanum vá það dregur fram gamlar minningar..eldgamlar..

Ah shit var að fatta að ég átti að hringja í píanókennarann minn seinasta mánudag og fá tíma í vikunni er nefnilega að fara í próf í þeirri næstu en núna er kominn laugardagur og ég ekki enn búin að hringja. AHHH hvernig gat ég gleymt þessu, er ég asni Skömmustulegur allt í rugli

Ætla að enda þetta hér með, allir sem eru í prófum gangi ykkur vel og að sjálfsögðu hinum líkaKoss

Erla. . . . . . . . . . .





Auglýsing

:)

Könnun

Hvernig eru sokkarnir á litinn?