Prófíll

  • Nafn: Erla
  • Netfang: erlak@mr.is
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Einar

Leit

Fréttir

-styttist í vorpróf
-miiikið að gera
-styttist í Halldísi, 19.júlí
-og Ítalíu 11.júní

Innskráningar kubbur

ó borg mín borg

23. ágúst 2006 klukkan 00:26
Já ég er komin heim til Reykjavíkur eftir annars alveg frábært sumar! Æðislegt að koma heim, líður veeeel!
Kom í fyrrakvöld og fór strax og hitti Guðlaugu sem ég hef ekki hitt í næstum 3 mánuði:o vá gaman
Svo í gær þá kom Berglind til mín og við ákváðum svo að fara til Árna...Hann dró okkur nú í einhverja gítarabúð að skoða gítara, banjó og harmonikkur og ég veit ekki hvað.. Keyrðum svo framhjá MH í Dabbaleit en hann fannst ekki svo við bara héldum áfram og fórum og fengum okkur ís. Fórum svo í bíó í gærkvöldið og þá Pési með okkur. Áhugaverð dópdíleramynd sem heitir....Miami vice?? eða eitthvað. Svo bara heim til Pésa eftir það.

Vá. Þessar bækur eru geðveiki! Var að versla áðan, fór á 2 skiptibókamarkaði og þær bækur sem ég er búin að kaupa kostuðu 22 þúsund þegar búið var að draga frá það sem ég skilaði frá því í fyrra. Enn á ég eftir að kaupa 2 risabækur fyrir líffræði og efnafræði og skilst mér að þær kosti ekkert lítið. Svo a ég líka eftir að kaupa MR fjölritin sem eru fjölmörg og svo allar stílabækur og annað slíkt og skólatösku! Hvar endar þetta allt saman?

Bekkjarlistarnir komu inn á mr-síðuna í dag.. Já ég er víst í 4.Y ásamt 21 öðrum sem voru með mér í 3.E. Já við erum semsagt 22 af 27 sem verðum áfram saman í bekk og 1 nýr strákur kemur í bekkinn. Vorkenni honum pínu!

Anna Elísa kemur heim úr vinnunni í Vindáshlíð í dag held ég þá get ég vonandi hitt hana á morgun vá hvað ég hlakka til! og Dabba ætla ég að hitta vonandi í kvöld. Vá það eru svo margir sem maður hefur ekki hitt langalengi og saknar svo mikið, þvílíkt gaman að hitta alla.

Berglind þekkir tvíbura sem eru jafngamlir??

Frábært sumar, Mývatns&Akureyrardjamm í hæsta gæðaflokki! Gaman að vera með yndislegu fólki ogvera í góðri vinnu. Lífið er yndislegt, sjáðu......

Skólinn byrjar bráðum! Styttist í þetta. Í þessum rituðu orðum eru um það bil 42 klst og 24 mínútur í skólasetningu. Hlakka frekar mikið til ójá.

tjái mig frekar seinna.
Erla

Berglind manstu? Haustið 2005.  Þarna vorum við bara litlir busar:p no more no more
gaman að lesa blogg frá þer´..það hefur ekki gerst lengi...heh;) en lfott blogg;);):*
#1
23. ágúst 2006 klukkan 22:36
 
Helga Lára
Hæhæ Erla mín. Já eins og Halldís segir þá er gaman að lesa blogg frá þér. Ég kem nú alveg enþá á þessa síðu skal ég nú segja þér ;)
En ég held að við þurfum að fara að hittast brálega og rækta sambandið því annars eigum við bara eftir að verða tvær manneskjur sem þekkjast ekki neitt :S Ég vil ekki að það gerist. Ekki eftir svona mikla sögu :D hehehe
En við sjáumst vonandi bráðlega.
Bless bless :*
#2
24. ágúst 2006 klukkan 16:30
umba umba umba umbaba, umba umba umbababa.... :D Ég verð að sýna þér þennan disk.. ég ELSKA´NN...
(núna kom t.d. onkey onkey onkey!!!)
En já... skólinn er byrjaður og þá býst ég við miklu fleiri bloggum Erla, annars dey ég úr leiðindum, því að ég er svoddan tölvunölli skiluru, að þegar ég ætti
að vera að gera eitthvað allt annað en að sörfa um netið, þá verð e´g að lesa einhver skemmtileg og uppbyggjandi blogg...:D
Okei ég er hætt að botna í mér...
En hei, jú and mí ... vi ses...og höres...
Bleeeee

(hvað meinaru að ég kvitti ekki.. ég kvitta ALLTAF á bloggin þin!!!!)
#3
25. ágúst 2006 klukkan 21:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

:)

Könnun

Hvernig eru sokkarnir á litinn?