Prófíll

  • Nafn: Erla
  • Netfang: erlak@mr.is
  • Staður: Reykjavík
  • Hjúskaparstaða: Einar

Leit

Fréttir

-styttist í vorpróf
-miiikið að gera
-styttist í Halldísi, 19.júlí
-og Ítalíu 11.júní

Innskráningar kubbur

heyrist MEEE

22. maí 2006 klukkan 19:48
Sko. Ég reyndi að blogga 3 sinnum daginn sem prófin kláruðust, ýtti alltaf á einhvern takka og tókst að eyða þessum flottu bloggum sem ég var búin að gera, svona í alvöru, þau voru öll löng og mjög flott.  Því miður get ég ekkert gert svoleiðis aftur.

Prófin kláruðust seinasta fimmtudag, langþráð frí núna, á miðvikudaginn fáum við svo einkunnir og þá tekur við 2 vikur af lærdómi fyrir endurtekningarpróf í sögu þar sem ég er 142% viss að ég fell.  Því miður!  Þessi próf voru eitt stórt stress, 10 próf í skólanum og 2 í tónlistinni, allt í einu.  Gekk nú reyndar vel í þessum 2 seinni nefndu, 9 í píanóinu og 9,4 í söngnum.  Mjöög ánægð með þaðHlæjandi Svo er bara að bíða og sjá með hinar einkunnirnar.

Eurovision á fimmtudaginn, fór heim til Ella- komst að því að ég kann ekki að grilla og komst líka að öðru, Eurovision er ekkert svo skemmtilegt enda horfði ég eiginlega ekki á það á laugardaginn.  Þreytt eftir 10 ára afmæli sem sysitr mín hafði haldið upp á um daginn.  Fullt hús af fólki já

Ég titra og skelf núna, vá.  Undanfarið hef ég tekið eftir því að tennurnar mínar hafa örlítið skekkst, önnur framtönnin er farin að þrýsta sér fram fyrir hina og mér var ekkert sama, þetta er það lítið að fæstir taka eftir þessu en ég hætti samt ekki að tala um þetta fyrr en mamma pantaði tíma hjá tannlækni fyrir mig.  Fór þangað áðan og jújú fyrst sagði hun að þetta væri bara eitthvað sem væri eðlilegt og gerist oft a þessum aldri.  Ákvað samt að taka röntgen mynd til öryggis.  og OJ.  ég er með aukatönn, auka, já eitt stykki sem á ekkert að vera þarna og hún er í miðjunni fyrir ofan framtennurnar og er að ýta þeim til núna.  Svo það var pantaður tími hjá mér hjá einhverjum tannskurðlækni 7 júní oj.  Það þarf að taka þetta, veit reyndar ekki hvenær og það þýðir deyfing=SPRAUTA, og taka tönnina=HNÍFUR!  Flestir sem þekkja mig vita að mér er ekki jafnilla við neitt og hnífa og sprautur þetta er agalegt ástand, en þetta er víst eitthvað sem ég verð að gera.

Það þýðir að ég get ekki farið að vinna í Mývatnssveit áður en ég fer til ÍtalíuFýldur Hafði hugsað mér að fara þangað að vinna í byrjun júní og vinna þá í 2 vikur eða eitthvað til að fá smá pening áður en ég fer til Ítalíu...munar alveg um það sko en nei þessi tannlæknatími er akkúrat þar í miðjunni sem þýðir að eg get ekkert farið norður og verð bara hér að gera ekki neitt!Óákveðinn Shit. Þá byrja ég bara að vinna eftir að ég kem heim frá Ítalíu sem er þá í byrjun júlí.  Vá langt þangað til. 

26 dagar í ÍTALÍU!! get ekki beðið

Halldís búin að vera á einhverju AFS námskeiði núna heilu og hálfu dagana til að undirbúa Spánar-ferðina, vá maður á eftir að sakna!

91,9

Amma kom í gær úr sveitinni, endalaust notalegt að hafa hana hérna heima hjá mérBrosandi

Fólk í burtu um helgina hvað á það að þýða!?! Dabbi uppí bústað alla helgina, Guðlaug uppí bústað og Skarpi uppí sveit! Jæjaa

Farin að gera eitthvað skemmtilegt, allir eru að vinna nema ég míímíí!!





well ég er í bænum og ég var ekki að vinna í dag! :D
en fer að vinna á morgun....
nett nett nett
#1
23. maí 2006 klukkan 02:56
 
Helga Lára
Já til hamingju með prófin :D
En hvað er að heyra...ertu með aðra tönn :S mér líst ekkert á þessar sögur um sprautur og hnífa! ojj nei!!! Ég held að ég myndi aldrei þora að fara í uppskurð. Það er bara óhugnalegt að það sé verið að skera í mann :S
En já...leiðinlegt með vinnuna...ég er sjálf alltaf að vinna finnst mér. Er með uppsafnaða þreytu sem ég fæ ekki tækifæri til þess að sofa út úr mér. En ég skal einhverntíman bjalla í þig þegar ég á frí. Eða þá að þú hringir í mig og athugir hvort ég sé í fríi....hvort sem þú vilt :D
#2
23. maí 2006 klukkan 07:15
flott blogg..en 91,9??? ég ekki fatta..hehe
en gangi þér vel með tönnina..þetta verður ekkert mál..ég hef farið til tannlæknis þar sem ég var með grænt plast fyrir munninum og önnur framtönnin stóð út í
loftið!! heh
en BÆ;)
#3
23. maí 2006 klukkan 17:35
 
Erla
oooojj:(:( ahh
en 91,9 = Xfm skrifaði þetta nú bara af því ég var að hlusta á það at that moment
#4
24. maí 2006 klukkan 02:29
Jaaaááá! Nú fatta ég..heh
#5
24. maí 2006 klukkan 03:03

Skrifa athugasemd

Auglýsing

:)

Könnun

Hvernig eru sokkarnir á litinn?