hópţrýstingur
Svo hér er ég. Jól og áramót búin og voru hátíðirnar bara mjög rólegar að vanda. Ég gerði ekki neitt hvað eftir annað og þess á milli sem ég gerði ekki neitt gerði ég ekki neitt.. Nema jú ég svaf, borðaði, hitti skemmtilegt fólk, spilaði spil, spilaði á píanó, söng og já svaf.. Svo fékk maður margar skemmtilegar gjafir um jól sem ég nenni nú varla að vera að segja frá hér.
Svo byrjaði skólinn bara aftur og allt frekar rólega af stað, gaman að hitta alla aftur og svona þegar ég kom aftur i bæinn.
Stærðfræðipróf í fyrradag sem kom miklu miklu betur út en öll fyrri próf vetrarins í meðaleinkunn að minnsta kosti. Ég fékk 9,4 í ólesnu og 9,5 í lesnu og er bara yfir mig hamingjusöm og glöð með það:)
Svo eru kennararnir (flestir) alveg miklu miklu skemmtilegri núna eftir jól virðist vera.. kannski því seinast þegar ég sá þá fyrir jól voru þeir í svo miklu stresskasti vegna prófanna svo munurinn er mikilll..
Dagurinn í dag er ekki búinn að vera sá besti sem ég hef lifað..Ekkert virðist ganga upp hjá mér. Dæmi um það sem hefur gengið á:
- Mamma skellti bílhurðinni fyrir framan mig og allur snjórinn af rúðunni hennar fór framaní mig
- Efnafræðikennarinn var ömurlegur og hefði allt eins sagt það beint út: Erla og Berglind þið eruð heimskar
- Kortið mitt var gleypt af hraðbanka því ég gleymdi að taka það úr
- Ég ákvað að mála mig i skólanum og hnerraði þegar ég var búin að setja maskarann á..svo það þýddi bara (HAND!)sápa og nudda allt af og byrja aftur..
- Gleymdi bæði efnafræði og tölvufræðibókum heima í morgun
- Berglind og strákarnir ákváðu að kaffæra mesta aumingjanum.. Þegar kom að því að ákveða hver það væri leit Árni á mig með mjög sérstöku brosi sem sagði greinilega að ég væri aumingi. Sem betur fer var ég nú samt ekki kaffærð
- Árni sagði að ég væri lúði
- Ég kom niðrí strætóskýli stuttu á eftir Berglindi, Tomma og Dabba. Þar höfðu þau greinilega verið hlæjandi (að mér)..mikið glott
- Það' fyrsta sem Berglind sagði þá við mig var: Erla mín gleymdirðu að greiða þér í morgun? (já hárið er svolítið úfið í dag)
- Svo næ ég upp úr þeim hvað hafi verið aðhlátursefnið og þá kom í ljós að:
-ég var víst mjög kjánaleg í gær þegar ég rann eitthvað til og tók einhver kjánaleg spor til að bjarga mér
- Svo í strætó stóð ég framan við þar sem Berglind og Tommi sátu.. Þegar vagninn fór af stað hentist ég svona næstum því í fangið á Tomma en náði svona naumlega að bjarga honum frá að fá mig og þunga skólatösku framanísig
- Svo þegar ég var sest við hliðiná Berglindi þar sem Tommi hafði setið bað Berglind mig að halda aðeins á skólatöskunni sinni og ég MISSTI hana...hefði ekkert átt að gera það þar sem ég sat..með hana í fanginu. Og ég var meira að segja mjög lengi að missa hana svo það var frekar kjánalegt..gerðist svona hægt eiginlega
- Svo gleymdi strætóinn að beygja götuna sem hann átti að gera svo við Dabbi þurftum að fara út annars staðar en venjulega. Jahá ég þurfti að stíga beint út á umferðareyju þar sem snjórinn náði mér næstum upp að hnjám.
- Svo eyðilagði ég næstum 3 eldhústæki í einu þegar ég var að gera mér boozt.. frábært
En ég ætla að segja þetta gott að sinni, vona að þetta svali bloggþorsta þínum í bili Berglind mín.

Bless
jei!
- hmm. . . . .
- ég er ekki búin að blogga mjög lengi
- en margt er búið að gerast
- ég er komin með bílpróf
- það er mjög gaman
- prófin byrja eftir 2 daga shit!
- saga
- fokk
- ég er í matarboði
- hjá ömmu og afa
- og fullt af fólki er á staðnum
- ég er að fara í sumarbústað einhvern tímann
- ég hlakka til
- jólin nálgast óðfluga
- óð fluga nálgast óðfluga
- ætli það sé góð fluga?
- þórarinn eldjárn
- straujárn
- ég er að blogga bara fyrir óða ættingja
- sem ég er búin að komast að að er eina fólkið sem skoðar bloggið
- saumavél
- saga
- efnafræði
- spænska
- danska
- líffræði
- lesin stærðfræði
- ólesin stærðfræði
- íslenska
- enska
- þetta eru prófin
- ég er stressuð
- ég er heimsk
- hrærivél
- góða nótt
fram ţjáđir menn í ţúsund löndum!
Á fimmtudaginn fór ég í ökuskólann og svo þegar ég var að labba heim voru ljósin akkúrat slökkt í borginni, flott þar sem ég var einmitt stödd á göngubrú yfir Miklubraut. Ég og Anna vorum þarna að pæla í myrkrinu sem var nú eiginlega bara ekkert myrkur!
Á föstudaginn fór ég svo að ökuskola loknum heim til Kristínar Maríu sem var að halda innflutnings/afmælis-partý og það var bara mjög fínt.. Ég, Gyða og Hrönn í góðu stuði ásamt fleiru fólki.
Svo á laugardaginn var ég bara heima um daginn og fór svo að syngja i upptökum seinni partinn og um kvöldið heim til SigguSoffíu ásamt Steinunnnni þar sem við borðuðum pizzu, mygluðum og vorum við það að deyja úr þreytu.
Sunnudagurinn var nú eiginlega bara alveg eins nema þegar upptökur voru búnar fór ég nú bara heim, svo aðeins út og kíkti á Árna kallinn..
Þessi vika er bull, óeðlilega mikið af prófum!
-mánudagur Tjarnarhringurinn og ég ekki alveg í toppformi eftir sumarið svo vægt sé til orða tekið
-þriðjudagur Líffræði..Kirni, Deoxyríbósi, Beðmi, Peptíðtengi og Amínósýrur! Hver er munurinn á þessu öllu?
-miðvikudagur Stærðfræði. Já hin reglulegu stærðfræðipróf klikka ekki. Og hvað núna ákvað kennarinn að hafa efni seinasta prófs lika með á þessu prófi
-fimmtudagur Spænska. Kennarinn ofur-yndislegur svo maður þarf bara að teikna hjörtu á prófið og fá hátt? annars er lýsingarþátið ekki alveg að gera sig sko...
-föstudagur SAGA=oooóóó! Nú erum við í vondum málum trallalalalala? Helgi Ingólfs er náttúrulega allsvakalega smámunasamur og illkvittinn
Þannig að hvernig er ég stödd? Illa. Hjálp. Kannski ég ætti þá að eyða tíma mínum í að læra frekar en að blogga? Neei ég er ekki svo viss um að það gagnist.. Og þó
busadagur?
- Í dag var busadagur í MR
- Gaman að sjá litla kjötið að deyja úr hræðslu
- djúsí
- Busaball í kvöld
- Endalaus ást, gleði og hamingja
- Guðlaug mætir
- Partý hjá Ella
- Kvaddi Halldísi í dag, tárin spruttu fram
- Heilt ár!!:o
- Vá hvað ég hlakka til í kvöld
- Bíó í gær
- Berglind+Pési+Dabbi
- Lady in the water
- Ágætis mynd
- Pési að láta eins og kjáni
- Hlaupandi með bílum
- Kvíði fyrir á morgun:(
- MH ball í gær
- skrautlegar sögur af allnokkrum sem maður þekkir
- MR ballið verður betra!
- ójá fkn Reif-þema!
- Mig vantar föt
- Kringluna á eftir?
- Er farin
- Skemmtið ykkur vel
- Ekki fara of hægt í gleðina
- Erla

YEAH
all the leaves are brownnnnnnnnnnnnnnnnnnnnn
and the sky is grey.
I went for a walk
on a winters day.
vá minningar endalausar tengdar þessu lagi! eða aðallega þessum fyrstu 4 línum af CAlifornia Dreamin'

Núna er skólinn kominn á fullt og strax alltof alltof mikið heimanám, skil svosem ekki af hverju ég er að gefa mér tíma í að blogga en ég bara nenni ekki að læra akkúrat núna!
Var að taka strætó heim í Vonarstrætinu í gærkvöldi og þegar við Skarpi löbbum þarna sjáum við fullt af litlum kvikindum sem minna einkar mikið á busa? Hehe ég spyr nokkra hvað hafi verið að gerast og þeir segja: Það var busakynning í MR! Hvernig vissi ég.. Já í strætónum spjallaði ég smá við 2 þeirra og hræddi þá á því að þurfa að kunna Gaudeamus Igitur á öllum tungumálunum og sagði að annars væri maður í vondum málum og hræddi þá aðeins meira með því að segja bara hitt og þetta.
Vá strætókerfið er í rúst núna eftir að stofnleiðirnar fóru að ganga á 20 mínútna fresti og 5-an hætt að ganga. Þvílíkt vesen að koma sér á réttum tíma í skólann eða svona... Alltaf að koma ienhverjar auka 6-ur eða 3-ar þegar maður á síst von á. Rugl! Sakna 5-unnar!

á morgun ætlum við Berglind að fara til Keflavíkur til Halldísar í 1 nótt og svo á laugardaginn komum við i bæinn.. Þá fer ég á námskeið í kirkjunni, svo fund hjá UVG í Rvk, eins gott að kjósa rétt í stjórn
Svo um kvöldið er súper-mega grillchilll hjá Steinari þar sem 4.Y plús nokkum extra er boðið og svo tebó á eftir! gamangaman
Ég er að drepast í öxlunum, er með svo mikla vöðvabólgu - STRAX! þetta er eitthvað sem gerist venjulega þegar komið er langt fram í prófatíma.. ekki gott, þarf að bæta úr þessu einhvern veginn..
Strax komin með leið á enskunni, ég á ekki eftir að meika veturinn -vá

En er farin að læra býst ég við..
bless
chiao
adios
goodbye
hejhej
ítalíuþráá!
Erla
daddara...

ballballl
Hins vegar finnst mér skólinn ekki það merkilegt fyrirbæri að ég ætli að eyða of mörgum orðum í hann, hann er bara þarna til staðar, allir vita af honum en algjör óþarfi að ræða.

Mamma átti afmæli ígær, þýddi það þeyting fyrir mig útí kringlu bæði að kaupa eitthvað dót sem hún bað mig að kaupa og svo aftur í misheppnaðri tilraun minni til að finna heppnaða afmælisgjöf. Það hefur ekki enn tekist, ætli maður reyni ekki aftur í dag. Gestir um kvöldið en svo stakk ég af og fór og hitti fólk. Kvöldið einkenndist af mikilli þreytu fyrst og fremst, singstar, þýðingu á illusionating og annoying og svo endalausu rúnti! Fínt samt


LEnti í miður skemmtilegu atviki áðan. Var ein heima, síminn hringdi og ég svaraði. Kona frá Fréttablaðinu að gera skoðanakönnun. SPjallaði við mig í pínu stund og spurði svo hvort égværi með kosningaaldur og ég neitaði að sjálfsögðu. Þá spurði hún mig þessarar móðgandi spurningar: ,,Allt í lagi, en er einhver annar karlmaður en þú á heimilinu sem er með kosningaaldur?"
Ég varð móðguð!
Allir að fara frá mér til að vera skiptinemar!:( ekki gott
er farin að ryksuga
bless
jójóóó siggalafó

ó borg mín borg
Kom í fyrrakvöld og fór strax og hitti Guðlaugu sem ég hef ekki hitt í næstum 3 mánuði:o vá gaman
Svo í gær þá kom Berglind til mín og við ákváðum svo að fara til Árna...Hann dró okkur nú í einhverja gítarabúð að skoða gítara, banjó og harmonikkur og ég veit ekki hvað.. Keyrðum svo framhjá MH í Dabbaleit en hann fannst ekki svo við bara héldum áfram og fórum og fengum okkur ís. Fórum svo í bíó í gærkvöldið og þá Pési með okkur. Áhugaverð dópdíleramynd sem heitir....Miami vice?? eða eitthvað. Svo bara heim til Pésa eftir það.
Vá. Þessar bækur eru geðveiki! Var að versla áðan, fór á 2 skiptibókamarkaði og þær bækur sem ég er búin að kaupa kostuðu 22 þúsund þegar búið var að draga frá það sem ég skilaði frá því í fyrra. Enn á ég eftir að kaupa 2 risabækur fyrir líffræði og efnafræði og skilst mér að þær kosti ekkert lítið. Svo a ég líka eftir að kaupa MR fjölritin sem eru fjölmörg og svo allar stílabækur og annað slíkt og skólatösku! Hvar endar þetta allt saman?
Bekkjarlistarnir komu inn á mr-síðuna í dag.. Já ég er víst í 4.Y ásamt 21 öðrum sem voru með mér í 3.E. Já við erum semsagt 22 af 27 sem verðum áfram saman í bekk og 1 nýr strákur kemur í bekkinn. Vorkenni honum pínu!
Anna Elísa kemur heim úr vinnunni í Vindáshlíð í dag held ég þá get ég vonandi hitt hana á morgun vá hvað ég hlakka til! og Dabba ætla ég að hitta vonandi í kvöld. Vá það eru svo margir sem maður hefur ekki hitt langalengi og saknar svo mikið, þvílíkt gaman að hitta alla.
Berglind þekkir tvíbura sem eru jafngamlir??
Frábært sumar, Mývatns&Akureyrardjamm í hæsta gæðaflokki! Gaman að vera með yndislegu fólki ogvera í góðri vinnu. Lífið er yndislegt, sjáðu......
Skólinn byrjar bráðum! Styttist í þetta. Í þessum rituðu orðum eru um það bil 42 klst og 24 mínútur í skólasetningu. Hlakka frekar mikið til ójá.
tjái mig frekar seinna.
Erla

Berglind manstu? Haustið 2005. Þarna vorum við bara litlir busar:p no more no more
mammamíaletmígó
já þetta er svona 2958482945890. tilraunin mín til að blogga seinasta 1,5 mánuðinn! alltaf tekst mér að ýta á einhverja takka og klúðra þessu öllu saman. Sit í kofanum okkar Eyrúnar í sveitinni og nenni ekki á fætur. shit! fer illa með mann að vera á kvöldvöktum, maður nennir ekki að vakna og ekki að gera neitt. letin fer gjörsamlega með mann! Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast á þessa blessuðu síðu.
- 1 æðisleg Ítalíuferð með skemmtilegasta fólki í heimi
- gaman að hitta alla aftur en samt bara í 1 dag
- fór svo strax norður
- var hér í viku ein án Eyrúnar
- en svo kom hún:)
- úrslitaleikur HM. . .
- við erum búnar að gera margt skemmtilegt
- útað borða, hitta strákana, baka köku sem hvarf MJÖÖG undarlega hratt, hestbakast, horfa á sjónvarpið(??) og margt fleira
- Halldís kom í heimsókn um seinustu helgi, æðislegt að fá hana:)
- Ég sakna allra í Reykjavík
- Mamma og pabbi að koma bráðum norður, get ekki beðið!
- Ég er búin að reyna að hringja í fólk og senda sms en ég held að það sé itthvað að, fólk svarar sjaldnast og fær samt ekki missed calls:/Sem dæmi má taka að ég hringdi nokkrum sinnum í Berglindi á afmælinu hennar en hún fékk 1 missed call seint um kvöldið!
- Pési ertu á lífi??
kveð að sinni, bið að heilsa öllum!:)
